|
|
18.10.2006 12:19:04 / brynja
Bess klúbburinn er nú eitthvað að detta niður, það er ekki búin
að vera bess hittingur í nokkra mánuði!
Ég sé Söndru aldrei! Elínu örsjaldan í skólanum og Svövu
eiginlega aldrei heldur. Mér finnst að við verðum að gera eitthvað
í því. Hvað segið þið um að fara bara í bíó saman á fimmtudaginn
eða eitthvað?
Annars er það að frétta af mér að ég er komin með bílpróf
fékk það á mánudaginn og fékk bara 2 mínusa í prófinu
ofsaökumaður!
Svo er ég byrjuð að æfa í kópavogi með breiðablik sem er
ótrúlega fínt og ég ætla að bæta mig helling næsta keppnistímabili
 
Og ég og Helgi förum alveg að eiga 6.mánaða afmæli, á næsta
mánudag Og það gengur allt frábærlega hjá okkur 
En endilega látið mig vita ef þið eruð til í einhvern
hitting!
H92XupTqcmWuM:http://www.smile.com.vu/Images/logosmile2-copy.gif"
width="113">
kv.Brynja
»
20.09.2006 19:49:14 / elín
Það
er nú reyndar ekki morgun en mér langaði að hafa þetta. Það er
núna komin 20 september og mér finnst ég hafa byrjað í skólanum
í gær. Þetta líður allt alltof hratt. Áður en að ég veit af verð
ég stúdent, komin með börn og farin á elliheimili. Ég er að fara
í próf eftir 3 vikur - stress.
Í gær
setti ég persónulegtmet í heimalærdómi. Ég lærði frá um 4 - 10
(auðvitað með smá MSN-pásum og svona). Ég þurfti að klára 200
blaðsíðna bók, We all fall down, sem er ekki með skemmtilegustu
bókum sem ég hef lesið. Þar sem ég ákvað að trassa þessa bók
svoldið þurfti ég að lesa 150 bls í gær. Svo var líka heimavinna í
þjóðhagfræði og stærðfræði. 'stolt'
Í gær
fór ég í 900 m prófið í Verzló og þegar að ég kom heim hélt ég að
ég myndi ekki hætta að hósta. Ég hata hálsbólgu, ég er búin að vera
með hálsbólgu, kvef, hósta og þetta í 2 vikur og ég er að verða
geðveik!
En hvað
var um næsta bess hitting?
Ég skal hafa einhvern tímann innan viku ef stemmarinn er fyrir
því.
Ég
ætlaði bara að henda inn smá bloggi því mér fannst Svava búin að
vera dugleg. 2 blogg í röð, gerist ekki oft á þessari síðu skal ég
segja ykkur.
En þetta
er komið gott, sjáumst
kv. Elín
Ösp
p.s
afhverju get ég ekki gert liti?
»
17.09.2006 20:51:25 / svava
Ég og Sandra skelltum okkur í bæinn áðan.
Kíktum fyrst í Ikea og síðan í Kringluna. Þar löbbuðum við,
löbbuðum við, löbbuðum við og urðum ekkert smá þreytar (allavega
ég). Fórum líka á á kaffihús sem var virkilega nice. Síðan tókum
við stærdó heim. Like old times.
Yndislegur dagur
Takk fyrir mig

P.s. Sandra, endilega bættu einhverju við þetta
ef þú nennir
P.s.2. Einhver að blogga bráðlega..
»
16.09.2006 13:06:42 / svava
Var að láta myndir úr símanum á netið. Ef vilji er fyrir hendi er
hægt að skoða þær hér.

Bæjó frá Svövu Lind
»
13.09.2006 13:39:30 / svava
Haha ég er farin að vorkenna pabba mínum. Fyrst eyðilegg ég klóstið
heima, þannig pabbi þarf að tæta það allt í sundur og laga það (er
samt ekki búinn að því). Voða mikið vesen eins og hann sagði. Og
síðan á leiðinni í vinnuna á morgun sagði Jökull honum að það væri
alveg nóg bensín á bílnum (þótt gula ljósið væri komið
upp). Eftir að pabbi er búinn að skutla Jökli í skólann verður
hann svo bensínlaus. Grey karlinn. Þurfti þá bara að gjöra svo
vel að koma sér út í kuldann og rölta á næstu bensínstöð. Hvurslags
börn sem maðurinn á.
En að öðru.
Afmælið hennar Söndru var haldið með pompi og
prakt laugardaginn seinasta, 9. september og þá átti Sandra b.t.w.
afmæli. Ég hef sagt það áður og segi það aftur TIL HAMINGJU!
En allavega. Sandra bauð okkur að
sjálfsögðu heim í yndælan mat þar sem hún er nú kokkanemi.
Kjúklingur og kampavín með fyrir þá sem vildu. Yndælt. Svo
sannarlega. Ég og Brynja urðum samferða og þegar við komum er Elín
þegar komin. Við þurftum að bíða nokkuð lengi eftir hinum en á
endanum komu þær og þá var sko borðað. Svo var kaka, afmælissöngur
og að lokum Robbie Williams tónleikar. Næst héldum
við allar í "partý" til stelpu sem heitir Heiða og vinkonu
hennar. Allar nema Brynja reyndar. Linsurnar voru byrjaðar að
vera óþæginlegar og hún þreytt og svona svo hún skaust bara
heim. Úr partíinu héldum við í bæinn. Þar skildi Elín við okkur,
þar sem henni þótti of snemmt til að fara í bæinn og fór í e-ð
partý. Svo dönsuðum við af okkur fæturnar og vorum geðveikt
hressar. Elín kom aftur og þá með vinkonu sína með sér og sá ég
ekki mikið meira af henni um kvöldið.
Allavega þetta var rosa stuð. Fyrir utan að
ég var alveg eftir mig eftir þetta daginn eftir.
Takk fyrir mig.
»
30.08.2006 17:45:00 / elín
30.ágúst
2006
Seinast var bloggað á þessari
síðu 8. ágúst, fyrir bráðum mánuði. Ég er ekki frá því að þessi
síða sé að lognast út af smátt og smátt ef við förum ekki að gera
neitt í þessu. Ég veit ekki alveg hvað við ættum að gera þar sem að
við hittumst nánast aldrei. Ég hitti Svövu seinast áður en að ég
fór út en við ætlum að laga það í kvöld og hittast þá, ég er ekki
búin að sjá Söndru síðan ég veit ekki hvenær og ég þakka fyrir að
vera með Brynju í skóla bara til að sjá hana og segja "hæ", annars
myndi ég aldrei sjá hana.
Ég er með svoldið sorglegar
fréttir handa ykkur sem ekki vitið; Ég er hætt að æfa frjálsar. Ég
er komin með algjerlega ógeð af þessu, búin að æfa þetta í 8 ár og
hreinlega get ekki meira! Ekki það að þið séuð leiðileg sem æfið
með mér, mig langar bara að gera eitthvað annað sem tekur ekki
svona rosalegan tíma og hentar mér betur. Þess vegna ætla ég að
fara á eftir og kaupa mér árskort í toppform og vera dugleg að mæta
í tímana þar. Þannig þið þurfið ekkert að örvænta þó ég hætti, ég
verð samt þarna niðrí íþróttahúsi og kem að heilsa upp á ykkur í
frjálsum annað slagið.
En núna er skólinn kominn á
fullt og er búin að vera það í viku. Mér finnst rosalega gaman í
skólanum eitthvað núna. Ég er með ágæta stundartöflu og fína
kennara í öllu nema stærðfræði, sú er týnd. Busaballið er 14.
september, alltaf jafn gaman að fara á svona böll.
En ég kom heim frá tyrklandi
fyrir viku og liturinn er eilega allur farinn. Öll fyrirhöfnin
fyrir þessu, sólbað í 3 tíma á dag ef ekki meira og þetta dugði í
viku! Núna er ég bara svona útitekin. En það var æði á tyrklandi,
við gerðum eitt og annað t.d. köfun. Það var rosaleg upplifun, kafa
bara með fiskunum og gefa þeim að borða. Þetta er svoldið skrítið
þú sérð bara risastórt blátt og fullt af fiskum og getur bara
andað! Þetta er eitt af því skemmtilegasta sem að ég hef gert. Þið
getið séð myndir frá Tyrklandi á hinni heimasíðunni minni
http://www.blog.central.is/musur
En ég ætla að fara niðrí
íþróttahús núna, kaupa mér kort og koma mér aftur í form. Manni
líður svo svakalega vel þá. Þannig ég segi þetta bara
gott.
Sjáumst krakkar mínir
ElínÖsp
»
02.08.2006 13:15:04 / svava
Sæl og blessuð!
Nei sko hún Svava Lind ætlar að blogga.
Verslunarmannahelgin Eftir Svövu Lind
Jóhannsdóttur
Brynja = Fer á fimmtudaginn á
Unglingalandsmótið á Laugum. Svo ætlar hún líka að kíkja til
Akureyrar á hann Helga sinn + auðvitað river raftingið á
mánudeginum!
Elín = Innipúkinn + kristilegt
mót. Síðan fer hún til Tyrklands á þriðjudeginum að ég best
veit!!
Sandra = ??? Kannski
Unglingalandsmótið á Laugum.
Svava = Unglingalandsmótið á
Laugum, fer á föstudeginum og verð fram á sunnudag en fer í river
rafting á mánudeginum! Kíkir kannski líka e-ð til Akureyrar.
(Leiðréttið mig ef eitthvað er vitlaust)
Húsið og ég
Húsið er að gráta alveg eins og ég.
Dar-ra-ra-ra-ra, o-ó.
Það eru tár á rúðunni
sem leka svo niður veggina.
Gæsin flýgur á rúðunni,
eða er hún að fljúga á auganu á mér?
Ætli húsið geti látið sig dreyma,
ætli það fái martraðir?
Hárið á mér er ljóst, þakið á húsinu grænt,
ég Íslendingur, það Grænlendingur.
Mér finnst rigningin góð,
la-la-la-la-la, o-ó.
Mér finnst rigningin góð,
la-la-la-la-la, o-ó.
Einu sinni fórum við í bað og ferðuðumst til Balí.
Við heyrðum í gæsunum og regninu.
Það var í öðru húsi, það var í öðru húsi,
það var í öðru húsi, það á að flytja húsið í vor.
Mér finnst rigningin góð ...
Grafík
Fréttir
-
Klukkan er 6. Nú verða lestnar
fréttir.
-
Ég skráði mig í glímu og skák (+ frjálsar) á
unglingalandsmótinu. Ég ætla hiklaust í skákið en ætla aðeins að
kanna aðstæður í glímunni áður en ég tek endanlega
ákvörðun.
-
Brynja og Helgi ástfangin
-
Elín og Boði ástfangin
-
Sandra og Svava ástfangnar (ekki
misskilja samt)
-
Elín er að fara til Tyrklands eftir helgi með
Boða og öðrum vinahjónum þeirra.
-
Sandra er endanlega komin heim úr sveitinni og
er að fara á samning hjá Nordica Hotel!!! flottur Sandra
-
Frjálsar eru að fara í river rafting á
mánudaginn næsta.
-
Það er alltof heitt úti. Ég er samt alveg smá
að fíla þetta.
-
Viðvörun hefur borist um
hættulega manneskju í umferðinni milli kl. 16:30 og 17:30 í
dag.
-
Alexander er veikur og er á
sjúkrahúsi  .
-
Ég er ekki búin að sjá Elínu of lengi og
Söndru allt of lengi.
-
Fleira var ekki í fréttum að sinni. Fréttir
verða aldrei aftur lesnar. Takk fyrir.
You're Beutiful
My life is brilliant.
My love is pure.
I saw an angel.
Of that I'm sure.
She smiled at me on the subway.
She was with another man.
But I won't lose no sleep on that,
'Cause I've got a plan.
You're beautiful. You're beautiful.
You're beautiful, it's true.
I saw you face in a crowded place,
And I don't know what to do,
'Cause I'll never be with you.
Yeah, she caught my eye,
As we walked on by.
She could see from my face that I was,
Fucking high,
And I don't think that I'll see her again,
But we shared a moment that will last till the end.
You're beautiful. You're beautiful.
You're beautiful, it's true.
I saw you face in a crowded place,
And I don't know what to do,
'Cause I'll never be with you.
You're beautiful. You're beautiful.
You're beautiful, it's true.
There must be an angel with a smile on her face,
When she thought up that I should be with you.
But it's time to face the truth,
I will never be with you.
James
Blunt

Svava, Sandra, Elín og Brynja

Hlynur, Halldór, Frikki, Mummi,
Svava, Brynja, Elísa og Elín

Ein af söndru því hún fékk ekki að vera með á seinustu mynd

Sú síðasta er af mér, því ég er svo falleg
Takk fyrir mig
-Litli bloggarinn
»
30.07.2006 18:15:09 / elín
Sælar
Ég er svo stolt af mér! Í
morgun hringdi Brynja og bað mig um að hjóla með sér niðrí
Laugardal. & vitiði ég sagði JÁ og ég, Yrja og
Brynja lögðum af stað um 12:15 og vorum komnar áður en
að Svava átti að keppa. Þetta var langt en gaman!
Mæli sko með þessu. Svava bætti sig held ég í 200 m í dag, hljóp á
28,29 held ég? Flott hjá þér.
Ég er að fara á
SigurRós tónleika í kvöld, frítt á þá í Miðtúni.
Sælar

-9 dagar í
Tyrkland-
»
09.07.2006 21:43:01 / bess
Góða Kvöldið,
Í morgun hringdi ég í Svövu
klukkan 11:30. Það hefði ég nú ekki átt að gera þar sem Svava
var sofandi og var sko ekki til í smá spjall! Alla vegana reyndi ég
svo aftur klukkutíma síðar og það gekk svona líka vel. Ég, Svava og
Sandra ákváðum að fara í bæinn um 2. Við fórum í smáralindina þar
sem Svava og Sandra keyptu sér alveg eins bol (það er nú reyndar
ekkert nýtt) og eitthvað gaman. Sandra varð svo alveg óð í tívolíið
þannig á endanum náði hún að draga okkur hinar 2. Við fórum í
FreakOut tækið og það var geiðveikt! Shit hvað þetta var
gaman. Svo fórum við eða ég að kaupa ís í Álfheima-ísbúðinni, nei
ég meina fáka- eða faxafeni. Svo vissum við bara ekkert hvað við
áttum að gera af okkur meira svo að við enduðum í Nauthólsvík. Það
var ÆÐI, sátum í grasinu að spjalla og ótrúlega gott veður.
Yndislegt. Svo var ferðinni bara haldið heim og ég fór til bróður
míns í mat og við horfðum á HM þar sem Ítalía vann Frakka í vító.
Þetta var nú meira hvað var Zidane að spá?
Þetta var frábær ess dagur!
Verðum að endurtaka þetta. Línuskautar í Nautó?
Þokkalega!
Stelpur mínar mig langar
að biðja ykkur að blogga kannski?
Ég nenni eilega ekki að
blogga, sjáumst.
-Tyrkland eftir 4
vikur-
»
24.06.2006 15:31:55 / elín
Hæ sæta
fólk.
Núna er Goggi á fullu
allt að gerast. Ekkert voðalega skemmtilegt enn þetta er í góðu.
Brynja kom heim á mánudaginn frá Noregi, það gekk víst ekki alltof
vel þarna úti en það kemur bara næst! Að mínu mati stóðstu þig vel,
til hamingju.
Svava er komin í góða vinnu núna, hjá krabbameinsfélaginu. Hún
svarar í símann og eitthvað svoleiðis.
Á Sunnudaginn
skelltum ég, Sandra og Svava okkur í bíó á She's the man. Mér
fannst hún ekkert smá fyndin. Haha "strákurinn" var alltaf svo
aulalegur og auðvitað svaka rómó endir, hver bjóst ekki við því?
Alla vegana góð mynd bara. Núna langar mig að sjá eitthvað lucky,
man ekki hvað hún heitir. Líka svona stelpumynd. Ég er öll í
þeim.
Ég er rosa fín núna,
er að fara í brúðkaup. Ég fer í 3 brúðkaup núna í sumar. Eitthvað
svaka í tísku núna að gifta sig.
Já ætlaði bara að
skella inn einu bloggi. Farin í brúðkaup.
Bæ sæta
fólk.
»
13.06.2006 14:40:58 / svava
Hæhæ fallega fólk. Hvernig er það, er búið að loka nfvi.is ? Bara
að spá...
»
11.06.2006 15:17:20 / elín
Hæm
Ótrúlega gaman.
Á föstudaginn hélt Brynja afmælið sitt. Það var rosa gaman. Ég kom
reyndar svoldið seint. En það var kjúklingasalat á boðstólum og
popp og svona. Svo var farið í singstar og rifjað upp gamlar
minningar. Við gáfum Brynju rosa töff gjöf, kjól, hálsmen og
sólgleraugu. Jám eftir það fór ég að hitta músur og svo bara
lúlla.
Elín; "Meina á
næsta ári verðuru komin með stúdentspróf, getur fengið þér
einhverja betri vinnu skiluru!"
Svava; (mjög hugsi) "Já kannski get ég fengið vinnu á
bókasafninu!"
HAHA
Á laugardaginn
hringdi ég í svövu og samtalið hljómaði svona;
Elín; Hæm
Svava; Hæm
Elín; hvað ertu að gera?
Svava; um, ekkert. Ertu að fara á æfngu? (svona eins og ég
væri að biðja hana um að koma með mér)
Elín; neeee, meira svona kaupa nammi með mér.
Svava; jáá okay, ég er til.
Við sem sagt
keyptum okkur nammi fyrir 600 kr á 50% afslætti og það endaði nú
bara með illt í maga.
En Brynja
endilega settu inn myndirnar sem við tókum!
kv. elín
ösp
»
10.06.2006 14:15:12 / bess

Hún á afmæli í dag,
hún á afmæli í dag,
hún á afmæli hún Brynja,
hún á afmæli í dag.
Hún er 17 ára í dag,
hún er 17 ára í dag,
hún er 17 ára hún Brynja
hún er 17 ára í dag.
VEI
Til hamingju með afmæli engillinn okkar, við elskum
þig!

>
kv. ess.

»
04.06.2006 16:36:59 / elín
Góðan daginn
Ég ætlaði bara að skella inn
stuttu bloggi vist að ekkert gerist hérna, efast líka um að hún
Brynja standi við loforðið sitt.
En næstu helgi erum við stelpurnar fyrir utan Söndru að fara í
æfingarbúðir á Vík eða í Vík, ég veit ekki hvort maður segir. Já
það verður örugglega fínt. Brynja með styrkinn? Já ég er ekki
viss hvort við förum með rútu eða ég á bíl. Erum ekki alveg búnar
að ræða það. Væri samt geiðveikt gaman að ég færi á bíl, bara
roadtrip og allt.
En Brynja og Sandra eru búnar
að vera að keppa um helgina. Ég vil óska þeim báðum til hamingju og
sérstaklega Brynju þar sem að stelpan náði lágmarki á NM sem er
eitthvað norðurlandamót í þraut. Ekkert smá stolt af henni. Brynja,
ég er að springa úr stolti af þér! Ótrúlega flott hjá þér. Já ég
ætla líka að koma því á framfæri að ég fór að horfa á Söndru en
komst því miður ekki að sjá Brynju gera góða.
En segi það gott,
sjáumst!

»
23.05.2006 09:47:25 / brynja
Sælar stúlkur 
Í þessum skrifuðu orðum er hún elín okkar í endajaxlatöku.
Þetta er ekkert smá dæmi, þarf að skera báðum megin og svo verður
hún rúmliggjandi í nokkra daga og kemst ekki á æfingu né neitt. Svo
við verðum að vera duglegar að fara og heilsa upp á hana svo hún
drepist nú ekki úr leiðindum.
En annars er ég bara í vinnunni núna, upp á leikskóla, og á 5
mínútur eftir af kaffinu mínu. Svo ég ætla ekki að hafa þetta
lengra, ákvað bara að blogga aðeins þar sem elín var að tala um
hvað við værum óvirkar hérna.
En ég lofa að skrifa fljótlega aftur,
kv.Brynja hamingjusama 
»
Síður: 1 2 3 ... 9
|
|